Össur


Beint á efnisyfirlit

Unloader One

Verkjameðferð án lyfja

Unloader One spelkan veitir nýja möguleika við meðferð á slitgigt í hnjám og er sérstaklega hönnuð til þess að draga úr álagi á slitnum liðflötum. Spelkan veitir hnénu stuðning og dregur úr verkjum.
Unloader One spelkan er árangur margra ára rannsóknar- og þróunarvinnu Össurar.

Hvað gerir Unloader One?

Unloader One hnéspelkan gerir notendum kleift að ganga með hana allan daginn, hún veitir stuðning og minnkar verki.

Í Unloader One spelkunni eru tveir borðar sem létta álagið af slitnum liðflötum og auðvelda sjúklingum að stíga í fótinn. Borðarnir aðlagast hreyfingum sem gerir það að verkum að álagið flyst af slitna liðfletinum yfir á þann heila. Notendur svitna síður af Unloader One hnéspelkunni en öðrum sambærilegum hnéspelkum. Sá hluti spelkunnar sem liggur næst húðinni er gatað sílikon sem hleypur lofti í gegn og gerir húðinni kleyft að anda vel. Með notkun sílíkons er Össur að styðast við áralanga reynslu sína á því sviði.

Unloader One Osteoarthritis knee braceEiginleikar Unloader One

  • Spelkan er fyrirferðalítil og létt
  • Spelkan fer undir föt og getur notandi gengið í hverju sem er
  • Spelkan er með mjúkri bólstrun og SenSil gel sílíkon húð
  • Spelkan loftar vel; sem gerir það að verkum að notandinn svitnar síður
  • Spelkan er með einfaldar festingar
  • Spelkan er auðstillanleg
  • Spelkan er meðfærileg
  • Spelkan er til í mörgum stærðum
  • Spelkan er til með klæðingu í allskyns litum

Frekari upplýsingar um það hvernig er hægt að nálgast Unloader One spelkuna hjá Össur er að finna hér.

Niðurstöður rannsókna

Frumniðurstöður nýrrar rannsóknar um Unloader One voru kynntar á Læknadögum 22. janúar 2009. Frumniðurstöður benda til þess að spelkan frá Össuri minnki verki og auki hreyfigetu slitgigtarsjúklinga.

Rannsóknir hafa sýnt fram á að slitgigtarspelka hefur jákvæð áhrif á velferð sjúklinga og linar þjáningar þeirra sem þjást af sliti í hnjám.

Í samanburðarannsókn á slitgigtarsjúklingum, framkvæmd árið 1999. Var hinum 119 þátttakendum, sem allir þjáðust af slitgigt í hné, skipt í 3 hópa af handahófi. Í fyrsta hópnum voru sjúklingar sem fengu einungis lyfjameðferð (verkjalyf). Annar hópurinn notaði Unloader spelku ásamt lyfjameðferð og þriðji hópurinn notaði spelku frá öðrum framleiðanda ásamt lyfjameðferð.

Niðurstöður rannsóknarinnar bentu til þess að verkir minnkuðu töluvert meira hjá hópnum sem notaði Unloader spelkuna (Kirkley, Amendola og Fowler, 1999).  Að auki hafa niðurstöður sýnt fram á að einstaklingar með slitgigt í hné eiga auðveldara með hreyfingu og eru verkjaminni þegar þeir nota Unloader spelkuna (Draper, Cable, Sanchez-Ballester, Hunt o.fl., 2000).

 

Leiðbeiningar (á ensku):

Unloader One Osteoarthritis Knee Braces - Instructions for Use

 




Topp-valmynd


Flýtileiðir


Leit


Aðgerðir


Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi