Hjörtur Þorgilsson golfáhugamaður hefur stundað íþróttir frá unga aldri, æfði fótbolta og handbolta en þegar hann var um 16 ára gamall var liðþófi fjarlægður og honum sagt að reyna fyrir sér á öðrum vettvangi. Hann lét það ekki hafa áhrif á sig og hélt ótrauður áfram.
„Þegar ég var svo orðinn 25 ára var liðþófi fjarlægður á vinstra hné og eftir aðgerðina hélt ég eins og áður áfram að gera það sem ég gat og stundaði veggtennis að miklu kappi. Fljótlega fór svo að hægjast á mér þar sem hnén voru orðin svo slæm og ég sá ekki fram á að geta stundað þetta frekar og fór þá fyrst að hugsa um hvað ég gæti gert sem reyndi ekki eins mikið á hnén,“ segir Hjörtur.
„Þegar ég svo byrjaði að æfa golf fann ég strax að það hentaði mér mjög vel og fékk fljótt brennandi áhuga. Ég komst þó ekkert áfram þar og þegar ég var farinn að haltra strax á annari braut þá fór ég í aðgerð og var skrúfaður til þar sem ég var orðinn svo slitinn, brjóskið uppurið og fóturinn hafði skekkst um 11 gráður um hnéð. Aðgerðin leiddi til þess að ég gat byrjað að spila golf af alvöru. Þegar ég hafði náð mér eftir aðgerðina gat ég gengið 18 holur í einhvern tíma þangað til vinstra hnéð fór að plaga mig. Mér var öllum lokið þegar hér var komið og þurfti stöðugt að taka inn bólgueyðandi lyf vegna sársauka og gat orðið lítið hreyft mig þar sem slitið var orðið svo mikið að næsta aðgerð lá nánast við. Svo var ég staddur í vinnuferð erlendis og er að spjalla við kollega minn að hann nefnir lausn sem Össur býður upp á varðandi spelkur sem vinna á slitgigt í hnjám sem geti dregið úr verkjum og jafnvel komið í veg fyrir frekari aðgerðir.“
„Það er erfitt að þurfa að horfast í augu við það að vera orðin svo illa á sig kominn af verkjum að maður geti ekki gengið tvær holur án þess að byrja að haltra,“
Hjörtur beið ekki boðanna þegar heim var komið og hafði samband við lækni sem vildi láta reyna á þetta og fékk fljótlega uppáskrifaða Unloader One spelku frá Össuri, sem hann hefur notað síðan. Hann segir það vera hreint kraftaverk að geta áfram stundað þessa heilsusamlegu íþrótt eins og hann gerir í dag en samkvæmt öllum spám ætti hann að vera hættur.
„Ég væri ekki í golfi ef ég væri ekki með Unloader One spelkuna. Ég er sem nýr maður. Ég spila nú golf að allt að þrisvar sinnum í viku á sumrin og hver hringur tekur um 4-5 klukkutíma, en ég finn ekki fyrir að spelkan hindri mig á nokkurn hátt. Ef ekki væri fyrir hana myndi ég líklega ganga með staf í dag og hefði án efa fljótt gefist upp á íþróttinni en það er ekki hægt að spila golf með hangandi hendi,“ segir Hjörtur og hlær.
Unloader One spelkan hefur notið mikilla vinsælda hjá golfáhugamönnum sem og öðrum sem þjást af slitgigt vegna mikils álags á hnjáliði. Hlutverk Unloader spelkunnar er að færa þungan frá einum fleti yfir á annan sem leiðir til þess að minni hætta er á að menn þurfi skurðaðgerð til eða neyta bólgueyðandi lyfja sem geta farið misvel í einstaklinga.
„Ég hef ekki orðið var við marga sem eru með spelkur í golfinu en ég veit um fleiri, fólk á mínum aldri og yngra sem eiga við hnémeiðsl að stríða og hafa þurft að hætta að spila golf eða stunda aðrar íþróttir þar sem þeira hafa ekki vitað af þessum möguleika.
Ég er búin að spila mjög reglulega síðan 2002 og spelkan hindrar mig ekki og dregur ekki úr þeim hreyfingum sem nauðsynlegar eru í golfinu. Til að byrja með þurfti ég oft að fá lánaðan golfbíl til að komast verkjalaus í gegnum hringinn, en núna þarf ég þess ekki lengur. Ég tek 18 holurnar og finn ekki fyrir því og síðastliðin tvö sumur hef ég tekið þátt í meistaramóti GR, þar sem ég hef leikið 18 holur fjóra daga í röð án vandræða. Ég velti því stundum fyrir mér að ef ég hefði vitað af þessum möguleika fyrr, hvort ég hefði þá nokkuð þurft að fara í þessa uppskurði á sínum tíma og væri jafnvel með enn lægri forgjöf,“ segir Hjörtur og glottir þegar hann heldur áfram út á völlinn og það gangandi – ekki á golfbílnum.