Össur - Líf án takmarkana
Leita á www.ossur.is

Spelkur og stuðningsvörur

Mikilvægt er að velja ávallt spelku við hæfi hvers og eins til að spelkan veiti réttan stuðning og tryggi hámarks árangur.

Þetta á jafnt við um staðlaðar spelkur t.d. vegna íþróttameiðsla, gigtar eða skekkju í liðum þar sem rétt spelka réttir eða heldur við liðinn á réttum stað, minnkar sársauka  og eykur hreyfigetu.

Stoðtækjaþjónusta Össurar sérhæfir sig í veita faglega ráðgjöf við val á spelkum og stuðningsvörum m.a. vegna stoðkerfisvandamála, gigtar, slysa eða íþróttameiðsla.

Rétt er að panta tíma hjá stoðtækjafræðingi sem leiðbeinir um val og meðferð á spelkum og stuðningsvörum eftir skoðun og mælingu, hvort sem um er að ræða staðlaðar eða sérgerðar lausnir.


Helstu flokkar spelka og stuðningsvara

Hér að neðan má sjá yfirlit yfir helstu flokka spelka og stuðningsvara sem Össur býður upp á.

Fætur og ökklar

Ökklaspelkur halda fæti og ökkla í ákveðinni stöðu til að rétta eða koma í veg fyrir ranga stöðu eða til að veita stuðning og aðhald eftir skurðaðgerð. Virkni og eiginleikar geta verið mjög mismunandi, allt frá léttum íþróttaspelkum að heilum næturspelkum.

Hné

Íþróttameiðsli, bílslys, beinbrot og slit eru nokkrar ástæður þess að fólk þarf að nota hnéspelkur. Í sumum tifellum er hnéspelka til dæmis notuð til að fyrirbyggja slit á hné, krossbandsslit og að hnéskelin fari úr lið, hvort sem er vegna íþróttaiðkana eða léttrar göngu.

Fótleggir

Svokallaðar heilfótarspelkur gagnast þeim sem hafa skerta hreyfigetu í hné og ökkla og koma í stað hefðbundinna ökkla- og hnéspelka.


Mjaðmir

Mjaðmaspelkur eru ekki mjög algengar og eru oftast notaðar í kjölfar slysaáverka eða skurðaðgerða. Stundum eru þessar spelkur einnig notaðar sem fyrirbyggjandi meðferð, t.d. til að koma í veg fyrir beinbrot á mjöðm eða að einstaklingur fari úr lið.

Bak, hryggur og mjóbak

Bakbelti veita stuðning við hrygg og mjóbak. Bakspelkur eru t.d. notaðar við þrálátum verkjum í baki, beinþynningu, brjósklosi og hryggskekkju.

Handleggir

Staðlaðar handarspelkur, fingurspelkur, úlnliðsspelkur, olnbogaspelkur, axlarspelkur o.s.frv. eru notaðar vegna liðagigtar, slysa eða sem stuðningur eftir beinbrot eða aðgerðir. Einnig eru til margar gerðir af mjög sérhæfðum spelkum t.d. fyrir hendur og fingur.


Hálskragar

Hálskragar og hálsspelkur veita stuðning við háls og höfuð m.a. vegna liðagigtar, liðskriðs og fyrir og eftir aðgerð.

Meðganga

Meðgöngubelti auka hreyfanleika og létta undir seinni stig meðgöngu með stuðningi við mjóbak og maga.

Skór og innlegg

Hluti af heildarþjónustu Össurar eru skór og innlegg sem við vinnum í samstarfi við sjúkraskósmið utan fyrirtækisins.

Sjúkratryggingar Íslands

Í mörgum tilfellum greiða Sjúkratryggingar Íslands hluta af kostnaði við kaup á hjálpartækjum en til þess þarf að fá "Umsókn um styrk til kaupa hjálpartækis" útfyllta af lækni.

Í neðangreindum vörulista eru upplýsingar um þær spelkur og stuðningsvörur sem eru í samningi við Sjúkratryggingar Íslands. Þessi listi er þá engan veginn tæmandi fyrir þá valkosti sem í boði eru. Sérfræðingar Össur leiðbeina fúslega um val á stuðningstækjum, m.a. með tillits til þeirra vara sem Sjúkratryggingar Íslands taka til.

Vörulisti stoðtækjaþjónustu Össurar