Desember 2006

22 desember 2006

Össur hf. kaupir Gibaud Group í Frakklandi

Ossur hf. (ICEX: OSSR), hefur keypt franska fyrirtækið Gibaud Group fyrir um 132 milljónir Bandaríkjadala (101 milljón evrur). Gibaud Group er forystufyrirtæki í Frakklandi á sviði þróunar og framleiðslu á stuðningstækjum með sérstakri áherslu á spelkur og vörur til notkunar við blóðrásarmeðferðir (phlebology). Össur tekur við rekstri Gibaud Group frá og með deginum í dag.