3 júní 2004
Danska fyrirtækið William Demant Invest (dótturfyrirtæki Oticon Foundation) hefur keypt 20 milljón hluti í Össuri hf. (ICEX: OSSR)
Fjárfestingin jafngildir 6,28% af heildarhlutafé fyrirtækisins, en kaupin fóru fram á genginu 55,5. Seljandi hlutanna er Mallard Holding SA, sem er í meirihlutaeigu Össurar Kristinssonar, stofnanda Össurar hf. Eftir söluna á Mallard Holding AS 18,7% hlut í Össuri hf.