22 desember 2003
Stjórnendur Össurar hf. gera ráð fyrir að 1 til 2 milljóna dala tap verði á starfsemi félagsins á fjórða ársfjórðungi 2003. Óreglulegur kostnaður á fjórða fjórðungi er áætlaður um 2,7 milljónir dala. Hann skýrist einkum af kostnaði vegna skipulagsbreytinga í kjölfar kaupa félagsins á Generation II, skipulagsbreytinga hjá Össur North America, Inc. og málaferla félagsins gegn Freedom Innovations, Inc.
10 desember 2003
Með dómssátt hinn 8. desember sl. náðist samkomulag milli dótturfyrirtækis Össurar, Ossur North America Inc., og Freedom Innovations Inc. um öll málaferli fyrirtækjanna fyrir ríkis- og alríkisdómstólum í Bandaríkjunum. Báðir aðilar lýstu ánægju með niðurstöðuna, sem er trúnaðarmál en felur m.a. í sér ákvæði um notendaleyfi.