22 desember 2003
Stjórnendur Össurar hf. gera ráð fyrir að 1 til 2 milljóna dala tap verði á starfsemi félagsins á fjórða ársfjórðungi 2003. Óreglulegur kostnaður á fjórða fjórðungi er áætlaður um 2,7 milljónir dala. Hann skýrist einkum af kostnaði vegna skipulagsbreytinga í kjölfar kaupa félagsins á Generation II, skipulagsbreytinga hjá Össur North America, Inc. og málaferla félagsins gegn Freedom Innovations, Inc.
10 desember 2003
Með dómssátt hinn 8. desember sl. náðist samkomulag milli dótturfyrirtækis Össurar, Ossur North America Inc., og Freedom Innovations Inc. um öll málaferli fyrirtækjanna fyrir ríkis- og alríkisdómstólum í Bandaríkjunum. Báðir aðilar lýstu ánægju með niðurstöðuna, sem er trúnaðarmál en felur m.a. í sér ákvæði um notendaleyfi.
11 nóvember 2003
Náðst hefur samkomulag um að Gary Wertz, framkvæmdastjóri Össur North America og þrír aðrir lykilstarfsmenn á sölu- og markaðssviði Össur North America, muni láta af störfum hjá fyrirtækinu frá og með 10. nóvember 2003.
28 október 2003
Vefur Össurar hf. var tilnefndur til íslensku vefverðlaunanna 2003. Íslensku vefverðlaunin eru árlega veitt vefsetrum sem talin eru skara fram úr á sínu sviði.
23 október 2003
Árshlutareikningur þriðja fjórðungs 2003 fyrir félagssamstæðu Össurar hf. var samþykktur á stjórnarfundi 22. október. Árshlutareikningurinn hefur verið kannaður af endurskoðendum félagsins og áritaður án athugasemda.
26 september 2003
Össur hf hefur undirritað samning um kaup á fyrirtækjasamstæðunni Generation II Group. Generation II er forystufyrirtæki á sviði þróunar og framleiðslu á hnjáspelkum í Norður Ameríku.
24 júlí 2003
Árshlutareikningur annars ársfjórðungs 2003 fyrir félagssamstæðu Össurar hf. var samþykktur á stjórnarfundi 23. júlí
24 júlí 2003
Bein útsending á netinu. Í fyrramálið (föstudag) gefst fjárfestum og öðrum, sem áhuga hafa á rekstri félagsins, kostur á að koma á opinn fund með stjórnendum félagsins.
2 júlí 2003
Össur hf. hefur fest kaup á stoðtækjafyrirtækinu Linea Orthopedics í Svíþjóð.
27 maí 2003
Árlega veitir tímaritið Investor Relation Magazine fyrirtækjum viðurkenningu fyrir góð samskipti og góða upplýsingagjöf til fjárfesta og var Össur hlutskarpast í hópi stórra og meðalstórra fyrirtækja.
15 maí 2003
Össur hefur gert samstarfssamning um markaðssetningu á stoðtækniverkvangi kanadíska fyrirtækisins Victhom Human Bionics Inc.
29 apríl 2003
Árshlutareikningur fyrsta ársfjórðungs 2003 fyrir félagssamstæðu Össurar hf. var samþykktur á stjórnarfundi 28. apríl.
29 apríl 2003
Bein útsending! Miðvikudagsmorguninn 30. apríl kl. 8:30 gefst fjárfestum og öðrum, sem áhuga hafa á rekstri félagsins, kostur á að koma á opinn fund með stjórnendum félagsins.
28 febrúar 2003
Aðalfundur félagsins var haldinn föstudaginn 21. febrúar 2003. Við það tækifæri flutti stjórnarformaður Össurar, Pétur Guðmundarson, ávarp þar sem tæpt var á helstu atriðum í starfsemi félagsins á árinu 2002.
21 febrúar 2003
Ársskýrsla Össurar fyrir 2002 komin út
Hægt er að nálgast ársskýrsluna á skrifstofu Össurar hf. en hún er einnig aðgengileg hér á vefnum í pdf
12 febrúar 2003
Ársreikningur 2002 fyrir félagssamstæðu Össurar hf. var samþykktur á stjórnarfundi 11. febrúar. Ársreikningurinn hefur verið endurskoðaður af endurskoðendum félagsins og áritaður án athugasemda.
7 febrúar 2003
Aðalfundur Össurar hf. verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38, Reykjavík, föstudaginn 21. febrúar 2003 og hefst kl. 9.00, árdegis.
28 janúar 2003
Samstarfssamningur Össurar og Landspítalans - háskólasjúkrahúss mun efla tengsl sjúkrahússins við atvinnulífið og vöruþróun Össurar á nýjum starfssviðum.
23 janúar 2003
Össur og Ríkisháskóli Kaliforníu í Dominguez Hills hafa tilkynnt undirritun samnings um flutning námsbrautar CSUDH í stoðtækja og stuðningstækja-fræðum til höfuðstöðva Össurar í Norður Ameríku