Ef þú þjáist af slitgigt og telur að Unloader One spelkan gæti hjálpað þér þá er hér að finna frekari upplýsingar um það hvernig þú getur nálgast spelkuna.
Össur mælir með því að byrjað sé á að bóka tíma hjá gigtar- eða bæklunarlækni. Ef sjúkdómsgreininig gefur til kynna að Unloader One spelkan henti þér þá mun læknirinn skrifa upp á tilvísun fyrir spelkunni. Heimilislæknar geta einnig skrifað upp á tilvísun.
Næsta skref væri þá að bóka tíma hjá sérfræðingum Össurar í síma 515 1300. Sérfræðingar Össurar mun mæla fyrir og ganga frá pöntun á Unloader One. Vinsamlega athugið að nauðsynlegt er að koma með tilvísunina þegar mælt er fyrir spelkunni.
Í flestum tilvikum greiðir Tryggingastofnun ríkisins spelkuna að fullu. Starfsfólk Össurar aðstoðar við að sækja um nauðsynlegan styrk.
Össur hf.
Grjóthálsi 5
110 Reykjavík
Tímapantanir í síma: 515 1300