Össur


Beint á efnisyfirlit

Framkvæmdastjórn

Jon SigurdssonJón Sigurðsson, hefur verið forstjóri Össurar hf. síðan 1996. Hann starfaði áður sem viðskiptafulltrúi Útflutningsráðs Íslands í New York á árunum 1992 til 1996. Jón var fjármálastjóri hjá Álafossi hf. frá 1989 til 1992, hjá Eimskipum hf. frá 1986 til 1989, meðal annars sem forstöðumaður utanlandsdeildar, og starfaði í þróunardeild hjá Bang & Olufsen AS í Danmörku á tímabilinu 1982 til 1984. Hann er stjórnarmaður hjá Alcan á Íslandi, Samherja og Háskólanum Í Reykjavík. Jón er með B.S. gráðu í rekstrartæknifræði frá Tækniskólanum í Óðinsvéum í Danmörku og meistaragráðu í viðskiptafræðum frá The United States International University í San Diego í Bandaríkjunum.


Egill Jonsson, Vice President of M&OEgill Jónsson framkvæmdastjóri framleiðslusviðs hefur starfað hjá fyrirtækinu frá árinu 1996. Hann hefur verið stjórnandi framleiðsludeildar frá þeim tíma. Egill var áður staðarverkfræðingur við Nesjavallavirkjun og verkefnastjóri hjá Verkfræðistofu Guðmundar og Kristjáns, VGK hf (1985-1996). Egill er með meistaragráðu í Vélaverkfræði frá Technical University í Kaupmannahöfn, DTU (1984).





Mahesh Mansukhani, President of Ossur North AmericaMahesh Mansukhani, framkvæmdarstjóri Össur North-America, hefur starfað hjá fyrirtækinu síðan um mitt ár 2008. Áður en hann tók til starfa hjá Össuri hf. Starfaði hann sem forstjóri hjá Alix Partners. Frá 2005-2007 starfaði hann sem framkvæmdastjóri DuPont Tyvek® og framkvæmdastjóri markaðs og sölusviðs frá 2002-2005. Áður starfaði hann sem ráðsgjafi í stjórnun og fjármálum. Mahes er með Mastersgráðu í alþjóðlegum reikningsskilum og fjármálastjórnun frá Reading Hákóla á Englandi, M.Phil fjármála gráðu frá Warwick Business school á Englandi og MBA gráðu frá Yale Háskóla í Bandaríkjunum..



Hilmar Bragi Janusarson, Vice President of R&DHilmar Bragi Janussoner framkvæmdastjóri rannsóknar- og Þróunarsviðs. Hilmar hefur starfað hjá fyrirtækinu síðan 1993 sem yfirmaður rannsókna og þróunar.  Hann stundaði rannsóknir hjá Iðntæknistofnun frá 1987 til 1988. Hilmar á sæti í stjórn Stjörnuodda hf. og í stjórn Rannsóknarráðs Íslands.
Hilmar er með B.Sc. gráðu í efnafræði frá Háskóla Íslands og doktorsgráðu í efnavísindum og verkfræði frá Leeds University í Englandi.







Hjorleifur PalssonHjörleifur Pálsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs hefur starfað hjá fyrirtækinu síðan 2001.  Hjörleifur starfaði áður hjá Deloitte & Touche og var einn af eigandum þess. 
Hjörleifur er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands 1988 og löggiltur endurskoðandi frá 1989.





 


Olafur Gylfason, Managing Director of Ossur EuropeÓlafur Gylfason, framkvæmdastjóri Össur Europe.  Ólafur hefur starfað hjá fyrirtækinu síðan 1997.  Hann starfaði fyrst sem sölustjóri alþjóðamarkaða en síðar sem sölu- og markaðsstjóri Össur Europe.  Ólafur er með BS gráðu í rekstrarhagfræði frá Viðskiptaháskólanum á Bifröst og mastesrgráðu í alþjóðaviðskiptum frá Háskólanum í Álaborg í Danmörku.  








Topp-valmynd


Flýtileiðir


Leit


Aðgerðir


Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi