Niels Jacobsen, stjórnarformaður, fæddur 1957, búsettur í Danmörku. Hann hefur setið í stjórn félagsins frá árinu 2005 og hefur verið formaður stjórnarinnar frá árinu 2006. Niels er forstjóri William Demant Holding A/S, sem er danskt framleiðslufyrirtæki á heilbrigðissviði fyrir heyrnartæki. Meðal fyrri starfa sem Niels hefur gegnt er forstjóri Orion A/S og varaforstjóri í stjórnunarmálum fyrir bæði Atlas Danmark A/S og Thrige-Titan A/S. Niels situr í stjórn fjölda danskra fyrirtækja og samtaka, þar á meðal LEGO A/S (formaður stjórnar), KIRKBI A/S (varaformaður stjórnar) og A.P. Møller Mærsk A/S. Niels gegnir stjórnunarstöðum í fjölda fyrirtækja sem eru í eigu William Demant Group að hluta til eða að öllu leyti, þ.m.t. Oticon A/S (formaður), William Demant Invest A/S (formaður), Sennheiser Communications A/S, HIMPP A/S (formaður), HIMSA A/S (formaður) og HIMSA II A/S. Að auki á Niels sæti í miðstjórn Samtaka danska iðnaðarins.
Niels er með MSc próf í hagfræði frá Háskólanum í Árhúsum í Danmörku. Hann og tengdir aðilar eiga 107.500 hluti í félaginu, en hann á ekki kauprétti í því. Niels er formaður stjórnar William Demant Invest, stærsta hluthafa félagsins, sem á 168.694.203 hluti í félaginu. Hann er ekki í hagsmunatengslum við helstu viðskiptavini eða samkeppnisaðila félagsins.
Þórður Magnússon, varaformaður stjórnar, fæddur 1949, búsettur á Íslandi. Hann hefur setið í stjórn félagsins frá árinu 2005 og hefur verið varaformaður stjórnarinnar frá árinu 2006. Þórður er stjórnarformaður fjárfestingafélagsins Eyris Invest. Hann á einnig sæti í stjórnum fjölda íslenskra fyrirtækja, þar á meðal smásölufyrirtækjunum Byko, Kaupási og Norvik og er formaður stjórnar Marorku, sem fyrirtæki með orkustjórnunarkerfi, auk Calidris og Handpoint. Þórður situr ennfremur í stjórn Viðskiptaráðs Íslands og Háskólans í Reykjavík. Þórður var fjármálastjóri Eimskips í yfir 20 ár.
Þórður er með viðskiptafræðipróf frá Háskóla Íslands og MBA-gráðu frá háskólanum í Minnesota í Bandaríkjunum. Hann og tengdir aðilar eiga 8.456 hluti í félaginu, en hann á ekki kauprétti í því. Þórður er stjórnarformaður og stór hluthafi í Eyri Invest, næststærsta hluthafa félagsins, sem á 68.540.215 hluti í félaginu. Hann er ekki í hagsmunatengslum við helstu viðskiptavini eða samkeppnisaðila félagsins.
Arne Boye Nielsen, stjórnarmaður, fæddur 1968, búsettur í Danmörku. Hann hefur setið í stjórn félagsins frá árinu 2009. Arne hefur starfað hjá William Demant Holding A/S allan sinn starfsferil í margvíslegum störfum víða um heim. Arne hefur meðal annars gegnt stöðu sérstaks aðstoðarmanns Niels Jacobsen og framkvæmdastjóra Oticon Australia Pty Ltd. Árið 1996 varð hann forstjóri Diagnostic Instruments sem hefur starfsemi um allan heim. Frá 2003 hefur Arne setið í framkvæmdastjórn William Demant. Arne situr í stjórn Sennheiser Communications A/S og Phonic Ear A/S, auk þess sem hann er forstjóri Interacoustics A/S og framkvæmdastjóri Maico Diagnostic í Berlín í Þýskalandi.
Arne er með BS og MSc próf í viðskiptafræði og stjórnun frá Copenhagen Business School. Hann á ekki hlutabréf eða kauprétti í félaginu. Arne var tilnefndur í stjórnina af William Demant Invest, stærsta hluthafa félagsins. Hann er ekki í hagsmunatengslum við helstu viðskiptavini eða samkeppnisaðila félagsins.
Kristján Tómas Ragnarsson, stjórnarmaður, fæddur 1943, búsettur í Bandaríkjunum. Hann hefur setið í stjórn félagsins frá árinu 1999. Kristján er forstöðumaður og Lucy G. Moses prófessor við endurhæfingadeild Mount Sinai sjúkrahússins og læknaskólans í New York í Bandaríkjunum. Hann er sérfræðingur í örorku- og endurhæfingarlækningum, viðurkenndur af stjórn bandaríska örorku- og endurhæfingalækningaráðsins, og hefur starfað sem endurhæfingarlæknir og kennari í yfir 40 ár. Kristján er formaður stjórnar bandarísk-norræna félagsins, formaður í fræðafélagi bandarískra endurhæfingalækna og varaformaður bandarísku örorku- og endurhæfingastofnunarinnar.
Kristján er með kandídatspróf í læknisfræði frá læknadeild Háskóla Íslands. Kristján og tengdir aðilar eiga 623.789 hluti í félaginu, en hann á ekki kauprétti í því. Hann er ekki í hagsmunatengslum við helstu viðskiptavini, samkeppnisaðila eða stærstu hluthafa félagsins.
Svafa Grönfeldt, stjórnarmaður, fædd 1965, búsett á Íslandi. Hún hefur setið í stjórn félagsins frá árinu 2008. Svafa er þróunarstjóri Alvogen, sem er bandarískt samheitalyfjafyrirtæki. Meðal fyrri starfa sem Svafa hefur gegnt er rektor Háskólans í Reykjavík, aðstoðarforstjóri Actavis Group hf., lektor við Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands og framkvæmdastjóri og eigandi að IMG Gallup/Deloitte.
Svafa lauk doktorsprófi frá London School of Economics árið 2000. Hún á ekki hlutabréf eða kauprétti í félaginu. Svafa er ekki í hagsmunatengslum við helstu viðskiptavini, samkeppnisaðila eða stærstu hluthafa félagsins..