Össur


Beint á efnisyfirlit

Starfsmannastefna

Ossur InnovationMarkmið Össurar er að fyrirtækið hafi yfir að ráða hæfu, áhugasömu og vel þjálfuðu starfsfólki, sem axlar ábyrgð og sýnir frumkvæði í starfi og geti þannig tekið virkan þátt í framþróun fyrirtækisins í alþjóðlegu umhverfi þess.

Lögð er áhersla á
  • að starfsmenn þekki hlutverk Össurar og gæðastefnu fyrirtækisins
  • markviss vinnubrögð og frumkvæði í starfi
  • skýra ákvörðunartöku
  • hvetjandi starfsumhverfi
  • að fyrirtækið sé eftirsóknarverður vinnustaður þar sem starfsfólk er búið undir krefjandi verkefni með markvissri og skipulegri þjálfun
  • að hæfni ráði vali á starfsmönnum

Við lögum okkur að breyttum kröfum, sem starfið gerir til okkar, svo sem vegna tæknilegrar og faglegrar þróunar og erum reiðubúin að þjálfa okkur til nýrra og breyttra verkefna.

Ráðningar

  • Við ráðum til starfa hæfa og metnaðarfulla einstaklinga sem eru tilbúnir að takast á við krefjandi verkefni í síbreytilegu umhverfi.  Við viljum afla starfsfólks með mismunandi reynslu og þekkingu fyrir sérhvern hóp innan fyrirtækisins.
  • Val á samstarfsmönnum byggist á hlutlausum, faglegum vinnubrögðum.
  • Gengið er frá öllum ráðningum með formlegum hætti. 
  • Við gerum starfslýsingar fyrir öll störf og uppfærum þær þegar störf breytast.

Starfsþróun

  • Möguleikar meðal okkar eru jafnir til starfsframa, þannig að tryggt sé að hæfileikar nýtist sem best óháð kyni, aldri, trúarskoðunum, stjórnmálaskoðunum,  þjóðerni eða litarhætti.
  • Við eigum kost á starfsmannasamtali a.m.k. einu sinni á ári, með okkar yfirmanni.

Móttaka nýliða

  • Nýir starfsmenn fá fljótlega nægilega þjálfun til þess að takast á við starfið og lögð er áhersla á  að starfsmaðurinn geri sér fulla grein fyrir hlutverki sínu.
  • Við veitum nýjum starfsmönnum grunnþekkingu og fræðslu um uppbyggingu og deildir fyrirtækisins fyrstu þrjá mánuðina.

Upplýsingar

  • Við leggjum kapp á markvissa upplýsingagjöf til starfsmanna með útgáfu fréttabréfs, reglubundnum fundum, með skilvirkri notkun upplýsingatöflu á hverjum vinnustað og tölvupósti þar sem því verður við komið.

Jafnvægi vinnu og einkalífs

  • Við samræmum kröfur starfs- og fjölskylduábyrgðar eins og kostur er. Slíkur sveigjanleiki byggist á nánu samstarfi og trúnaði milli yfirmanns og undirmanns. 

Starfsandi og virðing

  • Við viljum stuðla að góðum starfsanda og  sýna samstarfsmönnum  og öðrum tilhlýðilega virðingu, umburðarlyndi og jákvætt viðmót. 



Topp-valmynd


Flýtileiðir


Leit


Aðgerðir


Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi