Össur


Beint á efnisyfirlit

Menntastefna

 
Okkur er ljóst mikilvægi sí- og  endurmenntunar. Til þess að fyrirtæki geti vaxið, þroskast og haldið samkeppnisstöðu sinni í síbreytilegu alþjóðlegu umhverfi er mikilvægt að við fáum tækifæri til að auka við þekkingu okkar og færni.
  • Við viljum að starfsmenn séu vel þjálfaðir og meðvitaðir um nýjungar í sinni starfsgrein þannig að fyrirtækið sé ávallt fremst á sínu sviði. Við berum sjálf ábyrgð á því að fylgjast með nýjungum í starfsgrein okkar.
     
  • Við sýnum frumkvæði í skipulagningu símenntunar okkar og tökum virkan þátt í árlegri endurskoðun þjálfunaráætlunar okkar.
     
  • Fræðsluþörf allra deilda er metin árlega með hjálp kunnáttutöflu, til að tryggja að menntun starfsmanna fyrirtækisins sé ekki eingöngu miðuð við einstaklinga deildarinnar, heldur jafnframt  heildarinnar. Stjórnendur miða áætlanir í fræðslumálum við framtíðarsýn sinnar deildar og fyrirtækisins.
     
  • Til þess að tryggja almenna vöruþekkingu starfsmanna eru haldnar reglubundnar kynningar fyrir starfsmenn og ennfremur lögð áhersla á mikilvægi gæða framleiðslunnar. 
      
  • Námskeiðs- og ráðstefnuumsóknir starfsmanna eru  metnar með það í huga að námið nýtist fyrirtækinu eða viðskiptavinum þess.
     
  • Við miðlum  þekkingu þeirri sem við hljótum við endurmenntun til annarra starfsmanna fyrirtækisins með óformlegum eða formlegum hætti.


 




Topp-valmynd


Flýtileiðir


Leit


Aðgerðir


Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi