Mannauðurinn er hverju fyrirtæki dýrmæt eign. Össur er hátæknifyrirtæki og árangur þess undir reyndu og hæfileikaríku fólki kominn. Við leggjum ríka áherslu á að laða að okkur hæft starfsfólk sem er tilbúið að leggja sig fram og sýnir frumkvæði.
Í síðustu vinnustaðagreiningu sem framkvæmd var kom fram að starfsmenn eru afar ánægðir í störfum sínum hjá Össuri. Meðaleinkunn fullyrðingarinnar "Á heildina litið er ég ánægður í starfi mínu hjá Össuri" var 4.34, en hæsta mögulega einkunn er 5.0.
Þegar umsóknin hefur verið send fær umsækjandi tilkynningu á skjáinn um að hún hafi borist Össuri. Umsóknir eru geymdar í sex mánuði. Að þeim tíma liðnum fær umsækjandi tilkynningu þess efnis að umsókninni hafi verið eytt. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Ef staðfesting á móttöku umsóknar birtist ekki, eftir að starfsumsóknarformið hefur verið fyllt út og sent, vinsamlega látið vefstjóra vita.
Ef þú hefur áhuga á að starfa hjá Össuri, sendu þá tölvupóst á job@ossur.com