Spelkur
Spelka réttir, styður eða heldur við mismunandi skekkjur eða skerta hreyfigetu. Margar af spelkunum eru gerðar eftir skoðun, greiningu og mælingu á einstaklingnum, aðrar spelkur eru staðlaðar.
Við skekkjum í liðum t.d. af völdum liðagigtar eða slitgigtar eru til spelkur sem rétta liðina eða halda við þar sem þarf og minnka sársauka.
Við lömun er hægt að fá spelku sem heldur við og styður við ákveðnar hreyfingar.
Við óstöðugleika, t.d. af völdum liðbandsáverka getur verið til hjálpar að nota stuðningsspelku. Við beinbrot er hægt að nota spelku í stað gifs.
- Ökklaspelkur
- Hnéspelkur
- Heilfótarspelkur
- Mjaðmaspelkur
- Bakbelti og bakspelkur
- Sérmótuð sæti
- Handspelkur
- Hálskragar og hálsspelkur
Ökklaspelkur
Ökklaspelkur, eiginleikar þeirra og virkni eru mjög misjafnar. Hjálpartæki við droppfót er algengasta ökklaspelkan sem stoðtækjafræðingar gera í dag. Önnur tegund ökklaspelku er svokölluð næturspelka, einföld plastspelka, sem er notuð til að halda fæti og ökkla í ákveðinni stöðu til að rétta eða koma í veg fyrir ranga stöðu eða til að veita stuðning og aðhald eftir skurðaðgerð. Einnig höfum við til sölu margar aðrar gerðir af ökklaspelkum.
Hnéspelkur
|
CTi Liðbandaspelka |
Hnéspelkur eru af mörgum gerðum og tegundum, til að geta veitt notandanum þann stuðning eða það hald sem hann þarf. Þær eru bæði sérgerðar eftir skoðun, greiningu og mælingu eða staðlaðar, allt eftir þörf hverju sinni.
Heilfótarspelkur
Sumir notendur hafa skerta hreyfigetu sem bæði hefur áhrif á hné og ökklaliðinn. Í flestum þessara tilfella er einfaldara að nota heilfótarspelku en bæði ökkla- og hnéspelku. Jafnvel hjá þeim einstaklingum sem hafa einungis skerðingu á hné getur verið betra að nota heilfótarspelku, það fer eftir umfangi skerðingarinnar og þeirra krafta sem verka á hné. Þetta er gert til að ná betri árangri.
Mjaðmaspelkur
Mjaðmaspelkur eru ekki mjög algengar og eru oftast notaðar í kjölfar slysaáverka eða skurðaðgerða. Stundum eru þessar spelkur einnig notaðar sem fyrirbyggjandi meðferð, t.d. til að koma í veg fyrir beinbrot á mjöðm eða að einstaklingur fari úr lið.
Bakbelti og bakspelkur
Verkur í baki, beinþynning, brjósklos, hryggskekkja? Með bakbelti eða spelku er hægt að styðja við og meðhöndla margs konar bakeinkenni. Hægt er að gera bæði sérgerðar spelkur og einnig eru á markaðinum margar mismunandi tegundir af stöðluðum bakbeltum og spelkum. Bakbelti eða spelka getur veitt góðan stuðning, áminningu við ákveðnar hreyfingar, þrýsting, hita eða verið réttingarspelka.
Handspelkur
Innan þessa flokks eru margar mismunandi gerðir spelka: Handarspelkur, fingurspelkur, úlnliðsspelkur, olnbogaspelkur, axlarspelkur o.s.frv. Til eru bæði staðlaðar spelkur sem mikið eru notaðar t.d. um úlnliði en einnig eru til margar gerðir af mjög sérhæfðum spelkum og sérsmíði.
|
Miami J hálskragi |