Össur - Líf án takmarkana
Leita á www.ossur.is

"Finnst ég hafa endurheimt lífið"

Helga Rún Pálsdóttir, klæðskerameistari, hönnuður og hattagerðarkona segir að hnéspelkan Unloader One hafi reynst henni eins og kraftaverk.

Mér finnst ég hafa endurheimt lífið með því að fá þessa spelku. Hún gerir mér kleift að gera ýmislegt sem ég var búin að útiloka, eins og að ferðast um heiminn," segir Helga Rún Pálsdóttir, klæðskerameistari um UnloaderOne hnéspelku sem fyrirtækið Össur framleiðir. Hún meinar greinilega hvert orð.

Helga er innan við fimmtugt en hefur átt við hnémeiðsli að stríða í mörg ár. Sextán ára gömul fór hún að fá verki í hægra hnéð, það átti til að bólgna upp og festast, líkt og hnéskelin gengi til, en á þeim tíma var hún að læra dans. Síðar vann hún á saumavél sem jók á verkina, svo hún segir hluta vandans áunninn. Hún fór í liðþófaaðgerð fyrir tveimur árum sem ekki gaf þann árangur sem vænst var og því var útlitið ekki bjart.

Nú er Helga Rún búin að vera með Unloader One spelkuna í hálft ár og segir lífið hafa breyst fljótlega eftir tilkomu hennar. „Eftir tíu daga notkun á spelkunni fór ég að finna mikinn mun á minni líðan," segir hún en viðurkennir þó að hafa líka fundið fyrir neikvæðum tilfinningum. „Mér fannst svolítið áfall að þurfa bera svona aðskotahlut og setti fyrir mig þætti eins og að þurfa að breyta klæðaburði - bara svona týpískt pjatt. Spurði einmitt stoðtækjafræðinginn minn hvort ég gæti ekki fengið annan lit þar sem ég gengi eiginlega aldrei í gráu! Mér finnst fyndið að hugsa til þess núna. Ég get ekki án spelkunnar verið í dag og þegar ég er spurð hvað ég sé með þá kalla ég þetta „minn hægri fót," segir Helga Rún og hlær.

Helga er menntaður klæðskerameistari, fatahönnuður, leikmynda-og búningahönnuður og hattagerðarkona. Vinnudagur hennar er oft langur við saumaskap og námskeiðahald í eigin fyrirtæki og vinnu í leikhúsum og sjónvarpi, jafnvel við útitökur í ólíkum aðstæðum, enda kveðst hún vera vinnualki eins og margur íslendingurinn. „Þegar álagið var hvað mest og verkir í hnénu voru óbærilegir íhugaði ég að skipta um starf en tilhugsunin um það gerði mig dapra," segir hún og bætir við. „Ef ég hefði ekki fengið þessa frábæru spelku væri ég núna eflaust búin að þurfa að breyta mörgu í lífi mínu og væri komin á bætur."