Össur býður viðskiptavinum sínum upp á alhliða stoðtækjaþjónustu en meðal lausna sem við bjóðum upp á eru öll sérsmíði á gervifótum og-höndum.
Markmið okkar er að auka lífsgæði með bættum vörum og þjónustu. Sérfræðingar Össurar sérhæfa sig í vali og smíði á stoðtækjum sem hentar hverjum og einum.
Sérhæfð þjónusta með einstaklingsmiðuðum lausnum er að Grjóthálsi 1-3. Þar er móttaka fyrir viðskiptavini sem þurfa stoðtæki bæði sérsmíðuð og stöðluð.
Tímapantanir eru í síma 515-1300 frá kl. 08:30 til 16:00 alla virka daga og einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið: mottaka@ossur.com
Framleiðsluvörur Össurar eru seldar um allan heim og spanna vítt svið stoð- og stuðningstækja. Allar upplýsingar um framleiðsluvörur okkar er að finna á ensku á ossur.com