CTi spelkan er sérstaklega hönnuð til notkunar sem stuðningur eftir liðbandaáverka og er einnig notuð af íþróttafólki í forvarnarskyni um allan heim. CTi Spelkan hentar m.a. þeim sem iðka vatnasport, vetrarsport og mótorkross. Að auki hentar spelkan ökumönnum mótorhjóla.
CTi hefur verið kosin ein öruggasta spelkan fyrir mótorkross keppendur þar sem hún felur í sér aukin þægindi og styrk og getur komið í veg fyrir álagsmeiðsl.
Nafn spelkunnar CTi er dregið af tveimur megin efnum spelkunnar það er koltrefjum (e. Carbon fiber) og títani. Hún er hönnuð með það að markmiði að veita hámarksstuðning við innri og ytri liðbönd og fremra og aftara krossband. Hnépúði er á spelkunni sem verndar hnéskelina og hnjáliðinn.
Spelkan hefur hlotið viðurkenningu leiðandi fagaðila, meðal annars mæla íþróttamenn, þjálfarar og heilbrigðissérfræðingar um allan heim með notkun spelkunnar
Íslenska landsliðið í mótorkrossi hefur m.a. notað CTi spelkuna. Landsliðið keppti á heimsmeistarakeppni í mótorkrossi í Bandaríkjunum og styrkti Össur landsliðið með CTi spelkum til að verja keppendur gegn meiðslum.
Leiðbeiningar (á ensku):