Þegar byrjað er að nota ný innlegg á að nota þau í stuttan tíma í einu fyrsta daginn (30 – 40 mínútur). Smám saman á að auka notkunin þar til hún er orðin stöðug.
Ef innlegg eru fyrir í skónum á að fjarlægja þau áður en nýju innleggin eru sett í og ávallt ber að gæta þess að flöturinn undir þeim sé sléttur. Ef innleggin reynast of löng fram í tána má klippa framan af þeim.
Ef innleggin blotna á að taka þau upp úr skónum og láta þau þorna við stofuhita en ekki setja þau á ofn.
Best er að þrífa innleggin með því að taka þau af og til upp úr skónum og strjúka af þeim með rökum klút.
Endingartími innleggja fer eftir því hve mikil notkunin er. Eitt ár er algengur endingartími. Ef innleggin hafa reynst vel en gera það ekki lengur er kominn tími til að endurnýja þau.