4 febrúar 2010

Össur hf. - ársuppgjör 2009

Tilkynning frá Össuri hf. nr. 3/2010
Reykjavík, 4. febrúar 2010

Stöðugur rekstur árið 2009

Helstu atriði á árinu:

  • Heildarsala 331 milljón Bandaríkjadala
  • Salan var vaxandi yfir árið
  • EBITDA hlutfall 20%
  • Góður árangur í stoðtækjum
  • Önnur kynslóð af Bionics hátæknivörum kynnt 
  • Sterkara dreifikerfi
  • Skráning á NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn

Áætlun 2010:

  • Söluvöxtur 3-4%, í staðbundinni mynt
  • EBITDA vöxtur 8-10%, í staðbundinni mynt


Jón Sigurðsson, forstjóri:

„Niðurstaða ársins er góð og sýnir sterka stöðu félagsins. Á árinu hafa efnahagsþrengingar haft áhrif á viðskiptavini okkar og ákveðna markaði. Engu að síður sýnir Össur góðan rekstur og arðsemi. Tímamót eru í sölu á hátæknivörum okkar vegna nýrrar kynslóðar af hátæknihnénu RHEO KNEE sem og PROPRIO FOOT sem hefur verið samþykktur inn í endurgreiðslukerfin í Bandaríkjunum. Á árinu 2009 höfum við lagt mikla áherslu á að aðlaga spelkuhluta félagsins til að fullnýta möguleika okkar á þeim markaði.  Við erum vongóð um að 2010 verði spennandi ár hjá Össuri.“

Össur hf. kynnir afkomu ársins, fimmtudaginn 4. febrúar kl. 11:00 í Kaupmannahöfn

Kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður haldinn 4. febrúar í Kaupmannahöfn. Fundurinn verður á Radisson Blu Royal Hotel, Hammerichsgade 1, og hefst kl. 11:00 að íslenskum tíma / 12:00 CET / 6:00 EST. Á fundinum munu þeir Jón Sigurðsson, forstjóri og Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri, kynna afkomu félagsins og svara spurningum. Fundurinn fer fram á ensku.

Sýnt verður beint frá fundinum á netinu, á slóðinni www.ossur.com/investors

Einnig verður hægt að taka þátt í fundinum í síma. Símanúmer fyrir fundinn eru:
Ísland: 800 9313
Evrópa: + 44 (0) 207 509 5139
Bandaríkin: +1 718 354 1226

Ársreikningur (enska)

Fjárfestakynning (enska)

Afkomufrétt 2009

Fundur með Fjárfestum


Til baka