Kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður haldinn 4. febrúar í Kaupmannahöfn. Fundurinn fer fram á Radisson SAS Royal Hotel, Hammerichsgade 1, og hefst kl. 11:00 GMT / 12:00 CET / 6:00 EST. Á fundinum munu þeir Jón Sigurðsson, forstjóri og Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri, kynna afkomu félagsins og svara spurningum. Fundurinn fer fram á ensku.
Sýnt verður beint frá fundinum á netinu, á slóðinni www.ossur.com/investors
Einnig verður hægt að taka þátt í fundinum í síma. Símanúmer fyrir fundinn eru:
Ísland: 800-9313
Evrópa: + 44 (0) 207 509 5139
Bandaríkin: +1 718 354 1226
Kynningarefni verður aðgengilegt á heimasíðu Össurar: www.ossur.com, fréttavef Kauphallarinnar NASDAQ/ OMX: http://nasdaqomxnordic.com/Frettir og á www.huginonline.com