Össur er alþjóðlegt fyrirtæki sem starfar á heilbrigðissviði. Össur hannar og framleiðir stoðtæki, spelkur og stuðningsvörur. Össur er leiðandi í hönnun stoðtækja og annar stærsti stoðtækjaframleiðandinn í heiminum. Hjá fyrirtækinu starfa um 1700 starfsmenn á 14 starfsstöðvum víðs vegar um heim.
Össur var stofnað árið 1971. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru á Íslandi en Össur hefur starfsstöðvar í Bandaríkjunum, Kanada, Hollandi, Bretlandi, Svíþjóð, Ástralíu og Kína og er með umfangsmikið net dreifingaraðila á öðrum alþjóðlegum mörkuðum.
Hlutverk Össurar er að hjálpa fólki að njóta sín til fulls. Það er markmið Össurar að ryðja úr vegi líkamlegum hindrunum af völdum sjúkdóma eða aflimunar með því að framleiða bestu stoð- og stuðningstæki sem völ er á. Sú þekking sem skapast hefur innan fyrirtækisins er grunnurinn að auknum vexti og nýsköpunar í rannsóknar- og þróunarstarfi fyrirtækisins. Metfjárfesting á þessu sviði speglast í þeim mikla fjölda af nýjum vörum sem eru kynntar á hverju ári.
Össur kappkostar að vörur og þjónusta fyrirtækisins fari fram úr væntingum viðskiptavina og haldi áfram að vera leiðandi á sínu sviði. Með því að fjárfesta í öflugu rannsóknar- og þróunarstarfi fyrirtækisins mun Össur halda áfram að framleiða framúrskarandi vörur sem miða að því markmiði að auka lífsgæði þeirra sem þurfa á vörum okkar að halda.
Stefnumið Össurar felast í því að hanna tæknilegar gæðalausnir og bæta hreyfanleika. Við nýtum gildi okkar og sérstæða þekkingu til að byggja upp varanlegt samstarf. Á þann hátt náum við árangri í starfi og látum sýn okkar um að fólk njóti sín til fulls verða að veruleika.
Á alþjóðlegum vef Össurar, www.ossur.com/corporate, má finna nánari upplýsingar: