Nánari upplýsingar um Bionic vörulínuna má finna á www.ossur.com/bionics
Markmið Össur á sviði lífverkfræði* (Bionics) er að þróa stoðtæki sem koma í stað þeirrar virkni sem tapast þegar einstaklingur missir útlim. BIONIC vörulínan frá Össuri byggir á samþættingu skynjunar, gervigreindar og hreyfitækni við framleiðslu og þróun hátækni stoðtækja.
Við göngu berast stöðug skilaboð til heila þegar líkaminn bregst við ytra áreiti og umhverfi en við útlimamissi rofnar þetta ferli. Með samspili gervigreindar og hreyfitækni veitir Bionic vörulínan notandanum áður óþekkt tækifæri á að ganga og hreyfa sig, við allar aðstæður.
RHEO KNEE er fyrsta örgjörvastýrða hnéð sem hefur gervigreind. Með fullkomnustu tækni á sviði lífverkfræði lagar hnéð sig sjálfkrafa að göngulagi notandans sem og aðstæðum hverju sinni.
POWER KNEE er fyrsta rafdrifna gervihnéð í heimi. Hnéð býður upp á áður óþekkta virkni þar sem mótor kemur í stað vöðvaafls sem beygir og réttir úr hnénu.
PROPRIO FOOT gerir notendanum kleift að beygja og rétta ökklann. Fóturinn býður upp á áður óþekkta möguleika fyrir þá sem hafa misst fót fyrir neðan hné.
*Hugtakið „Lífverkfræði“ vísar til þess að beitt er líffræðilegum lögmálum til að rannska og þróa verkfræðileg kerfi, einkum rafeindakerfi. Enska orðið „BIONICS“ er samsett úr orðunum BI(O) og (Electr)onics.