Össur er alþjóðlegt fyrirtæki sem starfar á heilbrigðissviði. Össur hannar og framleiðir stoðtæki, spelkur og stuðningsvörur. Össur er leiðandi í hönnun stoðtækja og er annar stærsti stoðtækjaframleiðandi í heimi.
Össur hf. er skráð í kauphöll NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn undir merkinu OSSR DKK.
Vinsamlega athugið að ítarlegri upplýsingar um félagið má finna á sérstökum upplýsingasíðum fyrir fjárfesta á alþjóðlegum vef fyrirtækisins www.ossur.com/investors. Þar má m.a. finna upplýsingar um:
Hluthafar geta einnig nálgast upplýsingar hér: Shareholder portal
Hluthöfum, sem hafa hug á að umbreyta og flytja hlutabréf sín til vörslu í Danmörku, er bent á alþjóðlegan vef Össurar http://www.ossur.com/hlutabref þar sem er að finna nánari upplýsingar og leiðbeiningar um hvernig megi standa að því.
Vegna laga um gjaldeyrismál geta Íslendingar ekki keypt hlutabréf í Össuri á danska markaðnum. Seðlabanki Íslands hefur veitt undanþágu til hluthafa sem keyptu hlutabréf fyrir 1. nóvember 2010 og geta þeir flutt hlutabréfin yfir á danska markaðinn. Hluthafar sem keypt hafa hlutabréf í Össuri frá og með 1. nóvember 2010 geta sótt um undanþágu hjá Seðlabanka Íslands til að flytja hlutabréfin á danska marakaðinn.
Ef þú vilt fá nánari upplýsingar á íslensku vinsamlega hafðu samband við Sigurborgu Arnarsdóttur (sarnarsdottir@ossur.com), fjárfestatengil Össurar.