Össur


Beint á efnisyfirlit

Um Össur

Össur er alþjóðlegt fyrirtæki sem starfar á heilbrigðissviði. Össur hannar og framleiðir stoðtæki, spelkur og stuðningsvörur. Össur er leiðandi í hönnun stoðtækja og annar stærsti stoðtækjaframleiðandinn í heiminum. Hjá fyrirtækinu starfa um 1600 starfsmenn á 14 starfsstöðvum víðs vegar um heim.

Össur var stofnað árið 1971. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru á Íslandi en Össur hefur starfsstöðvar í Bandaríkjunum, Kanada, Hollandi, Bretlandi, Svíþjóð, Ástralíu og Kína og er með umfangsmikið net dreifingaraðila á öðrum alþjóðlegum mörkuðum.

Hlutverk Össurar

Hlutverk Össurar er að hjálpa fólki að njóta sín til fulls. Það er markmið Össurar að ryðja úr vegi líkamlegum hindrunum af völdum sjúkdóma eða aflimunar með því að framleiða bestu stoð- og stuðningstæki sem völ er á. Sú þekking sem skapast hefur innan fyrirtækisins er grunnurinn að auknum vexti og nýsköpun í rannsóknar- og þróunarstarfi fyrirtækisins. Metfjárfesting á þessu sviði speglast í þeim mikla fjölda af nýjum vörurm sem eru kynntar á hverju ári.

Össur kappkostar að vörur og þjónusta fyrirtækisins fari fram úr væntingum viðskiptavina og haldi áfram að vera leiðandi á sínu sviði. Með því að fjárfesta í öflugu rannsóknar- og þróunarstarfi fyrirtækisins mun Össur halda áfram að framleiða framúrskarandi vörur sem miða að því markmiði að auka lífsgæði þeirra sem þurfa á vörum okkar að halda.

Stefnumið Össurar

Stefnumið Össurar felast í því að hanna tæknilegar gæðalausnir og bæta hreyfanleika. Við nýtum gildi okkar og sérstæða þekkingu til að byggja upp varanlegt samstarf. Á þann hátt náum við árangri í starfi og látum sýn okkar um að fólk njóti sín til fulls verða að veruleika.

Ítarlegar upplýsingar um fyrirtækið, stjórnendur og stefnu má finna á ensku á ossur.com 

 


Fréttir

09.03.2010

Össur hf. - Niðurstöður Aðalfundar

Aðalfundur Össurar var haldinn í morgun í höfuðstöðvum félagsins. Hjálagt eru niðurstöður fundarins ásamt nýjum samþykktum félagsins.
Meira

05.03.2010

Össur hf. - Frambjóðendur til stjórnar Össurar

Framboðsfrestur til stjórnar Össurar hf. er liðinn. Stjórnin verður kjörin á aðalfundi félagsins þriðjudaginn 9. mars 2010.
Meira

02.03.2010

Aðalfundur Össurar - endanleg dagskrá og tillögur

Endanleg dagskrá og tillögur fyrir aðalfund Össurar 9. Mars 2010
Meira

Eldri fréttir




Topp-valmynd


Flýtileiðir


Leit


Aðgerðir


Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi