Össur - Líf án takmarkana
Leita á www.ossur.is

 

Vísindasvið Össurar (Medical Office) býður til vísindaráðstefnu um aflimanir og gervilimi í Reykjavík dagana 14. og 15. júní 2012.

Sérfræðingar kynna undirbúning fyrir aðgerð og nýjar aðferðir til að bæta meðferð og endurhæfingu eftir aflimun neðri útlima á heilsdags ráðstefnu í Háskólanum í Reykjavík. Morguninn eftir verður boðið upp á vinnustofur í aðalstöðvum Össurar að Grjóthálsi 1-3.

Ráðstefnan er hugsuð fyrir klíníska sérfræðinga sem koma að aflimunum og endurhæfingarferli eftir þær, t.d. bæklunarskurðlækna, endurhæfingarlækna, stoðtækjafræðinga, sjúkraþjálfara og aðra sem starfa innan tengdra greina.

Dagskrá ráðstefnunnar

Skráning á ráðstefnuna


Össur á Íslandi býður upp á alhliða stoðtækjaþjónustu og sérfræðiráðgjöf, auk sérsmíði á gervilimum og spelkum.

Tímapantanir í síma 515-1300 frá kl. 08:30 til 16:00 alla virka daga og einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið: mottaka@ossur.com


Flutningur hlutabréfa

Hluthöfum, sem hafa hug á að umbreyta og flytja hlutabréf sín til vörslu í Danmörku, er bent á alþjóðlegan vef Össurar http://www.ossur.com/hlutabref þar sem er að finna nánari upplýsingar og leiðbeiningar um hvernig megi standa að því.

Vegna laga um gjaldeyrismál geta Íslendingar ekki keypt hlutabréf í Össuri á danska markaðnum. Seðlabanki Íslands hefur veitt undanþágu til hluthafa sem keyptu hlutabréf fyrir 1. nóvember 2010 og geta þeir flutt hlutabréfin yfir á danska markaðinn. Hluthafar sem keypt hafa hlutabréf í Össuri frá og með 1. nóvember 2010 geta sótt um undanþágu hjá Seðlabanka Íslands til að flytja hlutabréfin á danska marakaðinn.

Fjárfestaupplýsingar

Helstu fjárfestaupplýsingar, tilkynningar og skýrslur, má nálgast á www.ossur.com/investors

  • Myndbönd
  • Auk kynningamyndbanda (sjá sýnishorn hér til hliðar) framleiðir Össur Academy umtalsvert magn leiðbeiningamyndbanda fyrir vörur fyrirtækisins.

    Þessi myndbönd eru aðgengileg á tveimur YouTube rásum:

    Kynningarmyndbönd

    Fræðslumyndbönd

  • Kynningarmyndbönd

  • Leiðarvísar
  • Össur kappkostar við að búa vörur sínar vel úr garði m.a. með gerð leiðarvísa fyrir allar vörur fyrirtækisins.

    Í töflunni hér til hliðar má finna helstu leiðarvísa (e. Instructions for Use), tæknilegar upplýsingar (e. Technical Manuals) og önnur stoðskjöl.

Fréttir
14 maí 2012
Við leitum að reynslumiklum og áhugasömum einstaklingi til starfa við launavinnslu í starfsmannadeild.
14 maí 2012
30 apríl 2012

Eldri fréttir

Tímapantanir

Tímapantanir í síma 515-1300 frá kl. 08:30 til 16:00 alla virka daga og einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið: mottaka@ossur.com

Höfuðstöðvar

Össur hf.

Sími: 5151300
Fax: 5151366
Kt.: 560271-0189
Vsk. nr.: 17247

Netfang: mottaka@ossur.com

Össur á Íslandi
Grjótháls 3-5
110 Reykjavík
Ísland